Fréttir

PVC gluggar og hurðir

  05.02.2016

Langar þig að slaka á í sumar ? Þú sparar þér tíma og peninga með því að velja þér PVC glugga og hurðir

Flestir húseigendur kannast við það að þurfa bera á/mála gluggana og hurðarnar á húsinu reglulega. Þessi vinna getur verið tímafrek og einnig kostnaðarsöm. Með því að velja PVC glugga og hurðir fyrir þitt heimili, fækkar þú viðhaldsverkunum á sumrin, þar sem þeir eru viðhaldsfríir.

Til að koma í veg fyrir að eyða hásumrinu í gluggaskiptin, borgar sig að byrja tímalega að skoða og fá tilboð. Það getur reynst tímafrekt að velja réttu gluggana, fá nákvæma mælingu og framleiða glugga og hurðir, og því tímabært að byrja strax.

Allt á einum stað

Þó að þú teljir að PVC gluggar henti ekki þínu heimili, þá getum við samt mætt þínum þörfum. Auk PVC glugga og hurða höfum við einnig uppá að bjóða álglugga, hefðbundna timburglugga, og timburglugga með álklæðningu. Þú þarft því ekki að leita lengra þar sem þú færð allt hjá okkur.

Recent Posts

    Málning á 30% afslætti

      24.10.2017

    Kláraðu málningarvinnuna snemma fyrir jólin

    Kópal Magni á flísar, plast og fleiri erfiða fleti

      04.11.2016

    Fram að þessu hefur reynst erfitt að ná góðri viðloðun á mörgum efnum, s.s. flísum, plasti, allskyns málmum o.fl. Kópal Magni leysir nú þetta vandamál með frábærum árangri.

    Kópal Akrýlhúð á álagsmikla veggi

      09.09.2016

    Þegar mála á veggi sem eru á miklu álagssvæði þá skiptir máli að velja réttu málninguna.

    Blöndunartækja dagar

      06.09.2016

    20% afsláttur af blöndunartækjum í september

    Kork gólfefni

      25.08.2016

    Kork gólfefni henta mjög vel á flest heimili. Þau eru sérstaklega hlý viðkomu og henta því vel þar sem gólfkuldi er mikill. Kork gólfefni fá sérstaka yfirborðsmeðferð sem gerir það að verkum að lítil sem engin hætta er á að börn, aldraðir eða hreyfihamlaðir renni til á þeim. Það er mjög auðvelt að halda þeim hreinum og fallegum, og henta því vel fyrir ofnæmissjúklinga. Einnig eru þau mýkri en önnur efni og hlífa því baki og fótum mjög vel.

    Eldri Fréttir